Færsluflokkur: Bloggar
Stórslys kallar á hjálpartæki.
22.7.2010 | 10:14
Rútuslysið á Norðurlandið vekur okkur til umhugsunnar ,hversu við er megnugir til bjargar.Þó að slysið var ekki þess eðlis að það þyrfti að koma mörgum slösuðum undir læknishendur á sem stystum tíma,þó má ef til vill gera undantekningu á þeim tveim konum,sem voru fluttar á Landspítalann.
Engin þyrla var send á svæðið.En hvað ef allt fólkið hefði slasast það mikið,að þyrfti að flytja það á skömmum tíma þeim til bjargar í sjúkrahús.
Fækkun þyrla og minnkun rekstrafé til Landhelgisgæslunnar,sýnir okkur,sem og öðrum þjóðum,að öryggi ferðamanna er á skornum skammti.
Líðan frönsku konunnar stöðug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vágestur eða lífsbjörg þjóðarinnar?
22.7.2010 | 09:32
Ég hef áður bendt á það,að það sé þörf að kanna fæðuöflun makrílsins.sjá grein"Frjálsar veiðar á úthafsrækju"
En niðurstaða leiðangurs rannsóknarskip Hafró,er sú sem ég óttaðist.
Við eigum ekki að hika við að veiða makrílinn,til að reyna bjarga öðrum tegundum.
Makríllinn eins og ryksuga og tekur allt sem hann nær í | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það er súrt að tapa spóni úr aski sínum.
21.7.2010 | 00:22
Ég tek undir starfsfólki Dögunar sf.og styð áhvörðun ráðherra.Útgerðarmenn hafa lýst því yfir að það sé grundvöllur fyrir veiðunum,og kvótinn nánast uppurinn.
það væri forvitnislegt að vita hverjir eru að veiða núna.Er það kvótaeigendur eða eru það leiguaðilar?Svar við því þyrfti að liggja fyrir.Upplýsingar má ef til vill að finna á síðu Fiskistofu.En mig grunar að þeir útgerðarmenn,sem eru aðalkvótaeigendur,séu að leiga kvótinn,en hafa hæst í sölum ráðuneytisins,um að mótmæla.
Styðja ákvörðun sjávarútvegsráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
En hversu mikið fé,er bundið í öðrum tegundum?
20.7.2010 | 13:13
Hvernig á þjóðin að skilja það,að ríkið(m.t.Byggðastofnun) eigi veð í fiskveiðheimildum?
Ríkið afhendir veiðiheimildir og tekur síðan veð í þeim frá útgerðarmönnum til kaupa þær af öðrum útgerðarmönnum.Ekki er öll vitleysan eins?
Ég við vísa til fyrri færslu um þetta mál.
Talsvert fé bundið í rækjunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Vekjum athygli á vilja þjóðarinnar.
19.7.2010 | 15:46
Þó að sumir telja að Björk sé að vekja athygli af sjálfri sér,má það hins vegar færa,að með því er hún ekki síður að vekja athygli á landinu,sem hún aldist upp á.Hún hefur vakið heimsfrægð á sínu sviði,þannig það má ætla að það fólk,sem hún höfðar til, opnar hlustir hvað hún hefur að segja.
En hún vekur athygli á þeirri staðreynd,að við er að selja frá okkur þær auðlindir,sem þjóðin og afkomendur hennar verða lifa á í komandi framtíð.
Gulleggin okkar eru í auðlindum landsins.Auðlindir ber þjóðin að nýta til að ná okkur út úr kreppunni,og nota þær til framreiðslu á varningi,sem við getum komið á markað,en ekki selja þær.
Étum ekki útsæðið.
Ég þakka Björk og öllum þeim,sem vilja verja auðlindir landsins,hvort sem þeir búa hér á landi eða annars staðar.
Björk: Afgangar af spillingunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Frjálsar veiðar á úthafsrækju.
16.7.2010 | 21:17
Það vilja margir tjá sig um litlar aukningar á þorskveiðikvóta.Því taldi ég rétt að rita um frjálsar úthafsveiðar.
Við að veita heimild fyrir frjálsum úthafsrækjuveiðum,er verið að koma aftan að sumum útgerðamönnum.Þá sem hafa haft eignarhald yfir rækjukvótanum.Nú er verið að gera þá heimild verðlausa og þar að leiðandi óveðhæfa.Einnig má ætla að ekki geta þeir leigt rækjukvóta.
Hvað skyldi vera mikið fjármagn,sem rækjukvóti er í veði fyrir?Það er spurning sem væri rétt að uppvísa.Enda hlýtur það að vera,að einhverjar bankastofnannir krefjast breytingar á veðum.
Ég tel að það hafi verið rétt hjá ráðherra,að veita frjálsa heimild,og hefði átt að gera fyrir nokkrum árum.Handhafar heimildar hafa hætt veiðum,en þeir sem hafa vilja byrja,hafa orðið að leita til þeirra um heimildir.Og þá orðið að leggja út í kostnað fyrir leigu.
Annað hefur sjávarútvegsráðherra gert,sem er vel.Það er að heimila strandveiðibátum að reyna við sig við makrílveiðar.Það liggur ljóst fyrir að makríllinn leitar inn í voga og víkur,í leit að æti.Ekki sækja fjölveiðiskipin og togararnir þangað.
Makríllinn er í leit að æti,eins og ég sagði áðan,og hætt við að leiti upp hvert það síli,sem er hér við strendur.Það ber að huga að því,hvort hér sé ekki vágestur á ferð,éti þorsk-og annara fiska seyði.Því ætti að sækja í hann með öllum ráðum,burtséð hvort Írar eð aðrar þjóðir séu að mögla yfir því.
160 þúsund tonn af þorski | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Innan við 5%.
8.7.2010 | 17:52
Sigur fyrir lýðræðið í Hafnarfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Vandaður maður víkur.
8.7.2010 | 13:23
Lúðvík Geirsson hefur ákveðið að hætta störfum.Ég tel að það sé eftirsjá af manni,líkt og honum.Ég tel að hér sé maður,sem hefur barist fyrir velgegni bæjarins,og viljað gera öllum íbúum bæjarins til hæfis.Hann hefur verið ötull í íþrótta-og æskulýðsstörfum.Og starfað af miklum krafti til við uppbyggingu aðstöðu til íþrótta.
Auðvitað er þarf fleira um að hugsa í stóru bæjarfélagi.Ég er sáttur við það,að hann hefur verið á móti því að bærinn seldi eignir sínar,einhverjum fjárfestum,til leiga þær aftur,enda reift slíkum samningum,sem voru gerðir af fv.bæjarstjórn.
En eitt var það þó,sem ég var ósáttur við,er hvernig var byggt á Norðurbakkanum(sjá mynd.).Þarna var að vísu tekið við gjörðum fv.bæjarstjórnar,og haldið áfram með þeirra tillögu.En ég undirritaður var algerlega á móti.Þarna átt að vera,(samhvæmt mínum hugsjónum.Ein virðuleg bygging,ráðhús ásamt móttöku ferðalanga,og móttöku skemmtiferðaskipa.Þess skal getið að fleiri skemmtiferðaskip eru bókuð í sumar,en hafa verið undanfarið.
Höfnin er hjarta hvers bæjarfélag,sem liggja við sjó.Það er eitt ef þrengir hjartinu,þá líður því illa.Að byggja íbúðablokkir við höfnina,er ekkert nema aðþrenging að hjartanu.Íbúðablokkir eiga vera staðsettar upp á landi,þar sem að nóg landrými er til staðar.Þar væru næg bílastæði o.frv.
Samfylkingin var upphaflega á móti þessum aðgerðum,en helt þeim áfram er þeir tóku við.Voru það svik gagnvart alla vegi sumum kjósendum.
En það má til sannsögðu færa,að sitt sýnist hverjum,hvernig á að reka bæjarfélag,allir hafa lausnir,en það er alltaf í þá veru að hver og einn tekur þær lausnir mið á af sjálfum sér,en ekki af mið á bæjarbúum öllum.
Ég sagði að Lúðvík Geirsson er vandaður maður og vildi helst getað leyst vandamál hvers og eins,og því eftirsjá á honum.Ég vil óska honum alls hins besta í framtíðinni.
Sér eftir Lúðvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Krafa nr.1
7.7.2010 | 16:10
Fyrsta krafa frá ESB.(Þær eiga eftir að vera margar.)
Íslendingar eiga hætta hvalveiðum.Hér ein af sér kröfum,sem mörg lönd,sem liggja ekki að sjó,hafa verið að berjast fyrir.Þær þjóðir hafa enga hagmuni að gæta og hafa engan skilning á því,að það verður að halda jafnvægi í vistkerfinu.Sumar tegundur voru að vísu í útrýmingarhættu fyrir mörgum árum,en nú hafa þeir stofnar vaxið svo mikið,að þeir eru hættulegir vistkerfinu,sem og þeir eru í keppni við almenning um allan heim,um sjávarafurðir.
Hér eru hin svokölluðu náttúruverndarsamtök,sem halda því á lofti,að verið sé að útrýma hvölum.Þeim málstað hafa þeir tekist að berja inn í haus margra með lygum og uppskapningi.Sumt fólk hefur keypt af Samtökunum hvali,sem eru einhvers staðar á sundi um heimshöfin,og greitt stórar upphæðir fyrir.Það fjármagn er síðan notað til rekstur á Samtökunum.
Ekki skipti þeir sér að nautaati Spánverja,þó að þeir(Spánverjar),ali upp naut til að kvelja og síðan drepa þau síðan.Sú iðja er til að ganga í augum á ferðalöngum.Ekki veit betur,en að Spánn er innan ESB.Skyldi forsvarsmennirnir í Brussel þora að banna nautaat.
Ísland hætti hvalveiðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stjórnir lífeyrissjóðanna.
7.7.2010 | 01:14
Er það ekki full langt gengið,að aðalsamningamaður Lífeyrissjóðanna,sem er eign launþega,sé Arnar Sigmundsson fulltrúi vinnuveitanda.
Í lífeyrissjóðnum Gildi er æðsti ráðamaður Vilhjálmur Egilsson form.S.A.
Ég get engan veginn skilið það,að vinnuveitendur skulu vera aðal ráðamenn í Lífeyrissjóðum.Látum það vera,að þeir séu í stjórn sjóðanna,en þá ætíð í minnihluta.
Þetta sýnir okkur að forsvarmenn Félaga launþega eru í sínu embætti einungis til að féflétta félögin,til að njóta hárra launa,og sleikja rassgatið á vinnuveitendum.
Framkvæmdir fyrir 30 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)