Annað er að tala,hitt að framkvæma.
17.2.2010 | 17:24
Jóhanna,vill að ekki verði hlustað á þrýstihópa.
Voru það ekki þrýstihópar(búsáhaldabyltingin),sem henni til valda.
Þrýstihópar eru margskonar,og markmið þeirra eru mörg og mismunandi.
Þrýstihópar eru margir hlutar af þjóðinni og allir telja sig hafa eitthvað til síns máls.
Þrýstihópur eru þeir sem vilja framkvæmdir.
Þrýstihópur eru þeir,sem ekkert vilja gera.
Þrýstihópur eru þeir,sem ekkert vilja leggja til uppbyggingu landsins,en framkvæma þó.
Þrýstihópur eru þeir vilja byggja upp landið,þó að, af þeim er tekið einhvað til uppbyggingu.
Reka þarf ríkið á ódýrari hátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er þetta eitthvað skrítið?
16.2.2010 | 17:22
Við Íslendingar getum ekki verið undrandi yfir því,að verða ekki boðið þátttaka í þessum fundarhöldum.
Hvernig getum við ætlast til þess,þar sem að stjórnvöld liggja með bænarhug,um að komast inn í ESB.Við getum ekki bara haldið og sleppt.
Þetta rugl stjórnvalda,um að komast inn í ESB,er ekkert til annars en að skemma fyrir okkur á alþjóðavettfangi.Það verður ekki litað á okkur,sem þjóð,þegar við erum búnir að afsala öllum okkar auðlindum.Við verðum eitt lítið peð innan ESB og munum ekki hafa rétt til að semja við ríki utan þess.
Þetta er ástæðan fyrir því,að ekki er rætt við Íslendinga.Þeir geti ekki ætlast til þess að vera samningsaðilar að framtíð Norðurskautssvæðisins á sama tíma og eru að afsala sér rétt sinn að því.
Íslandi og Inúítum úthýst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sagan endurtekin.
14.2.2010 | 11:08
Það er ekki fyrsta sinn,sem svona lagað kemur fyrir.Dæmin er mörg bæði hér á landi,sem og í öðrum löndum.
Hér áður kom þetta fyrir,þegar verið var að landa hrossamakríl.Ástæðan var þá vegna þess að skipin voru lengi á veiðum.Þá myndaðist kolsýringur í lestunum.
Þetta gerist oft í heitari löndum.Enda myndast kolsýringurinn við gerjun hráefnisins.Ég bloggskrifari hef orðið vitni að þessu,þegar ég starfaði í Persaflóanum.En sem betur tókst að ná manni,upp úr lestinni og koma honum í sjúkrahús í tæka tíð.
Fyrir fáum árum lést íslenskur skipstjóri í Marakkó,er hann fór niður til að bjarga skipsfélaganum sínum.
Verst er við það,að menn verða ekki var við þennan kolsýring,þar sem að hann er lyktarlaus.Því kemur þetta ekki fram fyrr,en menn missa meðvitund.
En það er hægt að mæla þetta.Því á það að vera skilyrði,að öll skip,sem afla fisk til bræðslu hafi slíkan mælir umborð og láti síga niður í lestarnar áður,en menn fara niður.Það aldrei nógu varlega farið í þessu efni.
Misstu meðvitund við löndun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Afnema kvóta.
2.2.2010 | 15:56
Hvernig væri að afnema kvóta,af t.d.Úthafsræju og rækju af Fæmska hattinum.Og jafnvel fleiri tegundum.Það vantar meiri sókn í þessar tegundir.
Það er ekki réttlátt,að handhafar á veiðiheimildum,geti notað þær til að tegundaskipta.Það, fyrst og fremst riðlar kvótaskiptum.Sem veldur því að það er meira veitt,af sumum tegundum,en ætlað er.
Rætt um stjórn fiskveiða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Haitískipið
30.1.2010 | 23:50
Til þeirra sem lesa þennan pistil.
Hópur manna,hefur stofnað samtök,sem hefur það að stefnuskrá,að safna fyrir að hjálpa Haitíbúum.Hefur söfnunin gengið rosavel.Þarna er búið safna ógrynni,af fatnaði,matvörum,meðölum og sjúkravörum,tjöldum og barnavörum ýmislegum,svona má lengi telja.
Tilgangurinn er að fá skip til flutning á vörum,og nota skipið,sem sjúkrastofu til aðgerða á sárum manna.Sjúkrafólk á að verða í för.Eru margir sjálfboðaliðar búnir að skrá sig til fararinnar.
Nú er verið að leita að hentugu skipi til farinnar.Ég vil benda lesendum að skoða vefsíðu samtakanna"www.haitiskipid.com".Ef þið lesendur góðir viljið sýna þessu máli áhuga eða getið lagt málefninu lið,að setja ykkur í samband við þá,sem að þessu standa,þá er það vel þegið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrning og ekki fyrning.
27.1.2010 | 19:14
Ekkert liggur ljóst ennþá,hvernig skal staðið að fyrningu kvótans.Það eina sem liggur ljóst fyrir,er að fyrning á að vera 5% á næsta fiskveiðiári.
Mín skoðun er sú að það eigi að leggja niður,það svokallaða þorskígildi ,þetta orðskrípi er viðhaft,vegna tegundaskipti með framsali á hinu ýmsum fisktegundum.Margar tegundur eiga að vera utan kvóta.Það má nefna,steinbít,skötusel,sandkola,úthafsrækja,rækju af Flæmska hattinum og ef til vill fleiri.Kvótasetning á þessum tegundur hafa ekkert gert annað,en að búa til veð fyrir útgerðamenn,til þess að þeir geti aflað meiri peninga til að fjárfesta í kvóta eða hlutabréf o.fl.
Uppsjávarskipaútgerðin á að halda veiðheimildum á síld,loðnu og kolmunna,en markrílveiðum eiga aftur á móti skipt út til fleiri aðila,þar sem dreifing á honum óljós,má þar að nefna að makríll leitar víða bæði á grunnsævi,sem og djúpu vatni, og veiði á honum getur verið í mörg veiðafæri.
Þá erum við kominn að þeim tegundum,sem eiga vera háð veiðheimildum,ber að fyrna.
Vara við fyrningarleið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Andskotinn laus.
22.1.2010 | 00:05
Frá því að veðsetning á kvóta,var heimiluð,hafa sjómenn yfirleitt samþykkt mótmæli gegn því á félagsfundum.Töldu þeir að hér hafi andskotinn verið leystur.
Nú þegar þjóðarskútan,sem drekkhlaðin af sukki og svínaríi,og reynt er að snúa henni,verða sjómenn þeir fyrstu til að verða því mótfallnir.Hvað hefur skeð?Er búið að heilaþvo þá?
Að vísu á sjómannaafslátturinn enga samleið,með öðrum málum,sem hér er ályktað um.
Í ályktunni er meðal annars þetta,"Það er hinsvegar sameiginlegt verkefni stjórnmálamanna og þeirra,sem hagsmuna eiga að gæta,að fjalla sameignlega um hugsanlegar breytingar á kerfinu".
Ég get vissulega tekið undir það,en staðreyndin er sú,að útgerðarmenn hafa ekki viljað senda sinn fulltrúa í þann hóp,sem vinnur að þessum málum.Heldur mótmælir öllu,sem lagt er til,og kemur fram í fjölmiðlum.
Þess krafist að stjórnvöld falli frá fyrningarleið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
NA-Atlantshafsbandalag.
17.1.2010 | 18:14
Nú berst tillögur,að því sem ég áður hef reifað máls á.Einnig hefur Höydal í Færeyjum vakið látið frá sér fara ósk(hugmynd) um að Noregur,Ísland og Færeyjar myndi með sér bandalag.
Ég mundi þó telja að bandalag sem slíkt næði frá Kanada,Grænland Ísland,Færeyjar og Noregur.Þá mundi það koma til álykta að Írlendingar,sem hafa látið það ljós skína,að þeir yfirgefi ESB,kæmu þarna að.
Einnig ,þó sé öllu langsóttara er að Skotar,Orkeyingar og Shetlandseyingar hafa óskað sjálfstæðis frá Bretum.Yrði þá aðilar að slíku bandalagið.Auðvitað er þetta fjarlægar hugmyndir,en umræðan er hafin.Og orð er til alls vís.
Norðmönnum ber að aðstoða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hefja leit af Dorrit.
15.1.2010 | 15:24
Þegar maður heyrir að það,að þjóðhöfðingi fer sinna erinda,án eftirlit,þá skorðast áhyggjur ekki,við þá hættu,sem viðkomandi er í.Heldur að hann sjái hluti,sem hann má ekki sjá.
Auðvitað má hafa áhyggjur af glæsilegri,vel klæddri konu eins Dorrit er,meðal almenning,ekki síst þarna í Mumbai(Bombay),þó að flest af fólkinu þarna er heiðarlegt og viðkunnalegt fólk,er þar sem og annars staðar eru svartir sauðir.
Þarna í Mumbai búa marga milljóna manna,og er eymdin áberandi á kvöldin á strætum borgarinnar.
Þarna má sjá betlari útlimalausa,blinda og ung börn sem er að betla fyrir foreldra sína.Einnig í skuggahverfum börn allt niður í 8-9 ára bjóða sig,til kynferðisathafna.Þessi grey eru klædd í sumum tilfellum strigapokum.Er þetta hörmulegt á að líta.
Þarna er breitt bil á milli ríka og fátæka,auðlægðar og eymdar.Því er það ekki allt sem sýnist.
Ég sagði,og segi aftur nú,að Indverjar eru mjög vingjarnlegt fólk,ég tala reynslu þar sem að áhöfn mín í Persaflóa voru þeirra þjóða.Sjá myndaalbúm á minni síðu.
Ætluðu að hefja leit að Dorrit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Snör viðbrögð.
13.1.2010 | 15:16
Ég er ánægður og stoltur,hvað brugðist er skjótt við.
Össur hefur fengið nokkur prik,í prikabókina.Ekki veitti honum af,eftir að hafa misst margar blaðsíður úr.Þarna kemur í ljós,að hann betur staddur heima,en að vera í Indlandi.
Við Íslendingar megum vera stoltir af björgunarliðinu,sem og allri starfsemi björgunarsveitanna hér á landi,sem eru alltaf tilbúnir að veita aðstoð,hvernig sem aðstæður eru.
Við óskum þeim góðs gengi,og megi allir góðir vættir vernda þá,við þau hættulegu störf,sem þeir eru að ráðast í.
Lögð af stað til Haíti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)