Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011

Hver er áhugi tryggingarfélaganna?

Fjármögnun þyrlakaupa. Enn og aftur er rætt um kaup eða leigu á björgunnarþyrlu.Hefur Ögmundur ráðherra lagt að lífeyrissjóðunum að koma að því máli,með því að stofna félag um kaup á þyrlu,sem ríkið myndi svo leiga.Þetta er hugsað þannig að það yrði hagstæðara fyrir ríkið,leiga af innlendum aðila og greitt yrði með íslenskum krónum.Þá spyr ég, “Þarf ekki gjaldeyri til kaupanna?.” Stofna félag til kaupanna,er kannske rétt áhvörðun,en þá þarf væntanlega marga til að koma að því máli.Lífeyrissjóðir hafa lýst yfir áhuga,gott og vel. Undirritaður hefur í gegnum félagsstörf fyrir sjómenn,oft komið að þessu máli í ræðum og riti.Allt frá því að frétt,lá fyrir að bandaríkski herinn ætti að yfirgefa landið.Við nautum sannanlega góðs af björgunarstörfum þeirra,sem verður seint þakkað. Eitt er þó það,sem ég hef aldrei skilið,í þeirri baráttu sjómanna til þyrlukaupa,af hverju tryggingafélögin hafa ekki komið að þessu máli. Ég kom oft inn á það,að bankar væru á öðru hverju horni,en tryggingafélag á hinu. Hverjir eru það,sem hagnast mest á árangri Slysavarnafélaga,Björgunarfélaga og skóla öryggismála? Svarið er án efa “Tryggingafélögin”.Sjóðir þeirra yrðu betur settir í slysavörnum,heldur en í gróðrabraski,um allan heim,sem hafa endað með ósköpum. Ég vil koma að því,að þó að það séu sjómenn,sem berjast mest fyrir þyrlukaupum,eru útköll þyrlanna yfir 60% vegna björgunnar í landi.Af þeim sökum hef ég kallað eftir skyldutryggingu ferðalanga,sem ferðaskrifstofur eiga að innheimta af sínum viðskiptavinum.
mbl.is Fagnar áhuga lífeyrissjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Unga fólkið er ekki að gefast upp.

Annie Mist tekur við verðlaununum. Til vinstri er Kristan... Enn og aftur getur íslenska þjóðin verið stolt af unga fólkinu.Afrek Annie Mist er einstakt.Við hljótum að taka undir hamingjuóskir frá Forseta vorum.

 Nýlega hefur ung íslensk stúlka orðin heimsmeistari með liði sínu,í sundhandknattleik.Og  nú kemur frétt af íslenskri stúlku sem hefur unnið það afrek,að verða heimsmeistari í sinni íþrótt.


mbl.is Forsetinn sendir Annie Mist heillaóskir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband