Vírusinn hennar Jóhanna.

 Afsökunarræða Jóhanna,var einungis gerð til að kenna öðrum um.Hún sagði að við einkavæðingu bankanna,að tilstuðlum Framsóknar-og Sjálfstæðisflokkana, hefði myndast vírus,sem hefur verið smitberi á milli marga Íslendinga.Og er þar Samfylkingin engin undantekning.Þetta er að vísu rétt hjá Jóhönnu,en vírusinn var ekki að myndast þá.Hann hefur krumað allt frá því ári,þegar Jóhanna og Steingrímur ásamt sínum flokksbræðrum og systrum samþykki að veðheimildir á kvótanum.

 Einkenni þeirra,sem tóku þennan vírus var græðgi í völd og fjármunir.Græðgi þessi lokaði augum fyrir því,að hér var verið að ræna byggðalögum lifibrauð sín og atvinnu fjölda íbúa.Ræna gamalreyndum útgerðar-og sjómönnum,fyrirtækjum,sem þeir höfðu byggt upp á lífsleiðinni.

Við einkavæðingu bankanna hélt þetta áfram,með því að bankarnir voru seldir misyndismönnum,sem hikuðu ekki við,að ræna úr þeim sparifé almenning.

Því segi ég það,að það er enginn af fjórflokkunum,sem lýst getur yfir sakleysi sínu.

Jóhanna og allir stjórnmálmenn síðustu tuttugu ára.Lítið í eiginn barm,ég er viss um það að finnur þinn þátt í hruninu.Þegar þú finnur þinn þátt,vertu manneskja og viðurkenndu það,og láttu þjóðina um það,að gera það upp við sig,hvort hún kýs að njóta krafta þína á komandi árum.


mbl.is „Létum þetta líðast“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband